Umhverfisráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að landsáætlun um meðhöndlun úrgangs fyrir tímabilið 2013-2024, sem Environice hefur unnið að fyrir ráðuneytið undanfarnar vikur. Í drögunum er að finna ítarlegt yfirlit yfir núverandi stöðu úrgangsmála á Íslandi, bæði hvað varðar magn einstakra úrgangsflokka og þróun mismunandi leiða í meðhöndlun úrgangs. Þar eru einnig sett fram tímasett markmið sem öll miða að því að bæta nýtingu auðlinda og lágmarka þau neikvæðu áhrif sem myndun og meðhöndlun úrgangs hefur á umhverfið og heilsu manna.
|
Landsáætluninni sem nú liggur fyrir í drögum er ætlað að koma í stað fyrri áætlunar, sem kom út árið 2004 og gilti fyrir tímabilið 2004-2016. Í drögunum er lögð áhersla á að ævinlega þurfi að skoða úrgangsmál í víðu samhengi, enda ræðst úrgangsmyndunin öðru fremur af neyslu einstaklinga, heimila og fyrirtækja. Þetta kallar á að beitt sé lífsferilshugsun í allri stefnumótun og ákvarðanatöku um úrgangsmál, jafnt á vettvangi ríkis og sveitarfélaga.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og sækja landsáætlunardrögin á word-formi á heimasíðu umhverfisráðuneytisins. Umsögnum um drögin skal skilað í síðasta lagi 15. ágúst næstkomandi á netfangið postur@umh.stjr.is eða í bréfapósti, merkt Umhverfisráðuneytið, Skuggasund 1, 150 Reykjavík.
 |
| Úrgangur losaður á urðunarstað. | |