UMÍS ehf. Environice hefur unnið með Skútabergi ehf. að mati á umhverfisáhrifum efnistöku úr landi Skúta í Hörgársveit. Frummatsskýrsla vegna matsins hefur nú verið tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar og liggur skýrslan frammi til kynningar til 8. maí 2013 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Hörgársveitar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir, sem skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 8. maí 2013 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Frummatsskýrslu má einnig skoða hér. |