29. september 2011

Hrafnhildur ráðin til Environice

Environice bættist góður liðsauki á dögunum þegar Hrafnhildur Tryggvadóttir hóf störf á skrifstofu fyrirtækisins. Hrafnhildur útskrifaðist með BSc-gráðu í umhverfisfræðum frá Landbúnaðarháskóla Íslands á liðnu vori, en áður starfaði hún m.a. um árabil sem forstöðumaður Upplýsinga- og kynningarmiðstöðvar Vesturlands.

 

Hjá Environice mun Hrafnhildur einkum vinna að ráðgjöf um umhverfismál ferðaþjónustunnar, auk þess að vinna m.a. við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og umhverfismat áætlana.

 

Sem stendur eru því þrír starfsmenn hjá Environice, en þar eru fyrir Stefán Gíslason framkvæmdastjóri og Arnheiður Hjörleifsdóttir umhverfislandfræðingur. Auk þess hefur Birgitta Stefánsdóttir aðstoðað fyrirtækið í einstökum verkefnum, en hún er um þessar mundir í meistaranámi í umhverfisstjórnun við Mið-Evrópuháskólann í Búdapest.

 

Hrafnhildur Tryggvadóttir umhverfisfræðingur

 


 

 

29. september 2011


Til baka


Yfirlit frétta


 
  Forsíða
  Fréttir
  Um Environice
  Verkefni
  Fróðleikur
  Alþjóðasamstarf
  Mat á umhverfisáhrifum
  Útgáfa
  Fjallvegahlaup
  Hafðu samband
  Leit