Meðal annarra fyrirlesara má nefna fulltrúa Norrænu ráðherranefndarinnar, sem segja mun frá samstarfi Norðurlandanna á sviði sjálfbærrar þróunar. Á ráðstefnunni verður einnig fjallað um stöðu og framtíð Staðardagskrárstarfsins á Íslandi út frá könnun á árangri starfsins, sem Kristbjörg Ágústsdóttir, meistaranemi í umhverfisfræðum við Háskóla Íslands, vinnur að um þessar mundir. Loks má nefna kynningu á hinni svonefndu „Stykkishólmsleið“ í úrgangsmálum, kynningu á starfi sveitarfélaganna á Snæfellsnesi undir merkjum vottunarkerfis Green Globe og kynningu á öðrum vottunarkerfum fyrir fyrirtæki og framkvæmdaaðila.
Ráðstefnan í Stykkishólmi hefst um hádegisbil föstudaginn 20. mars og lýkur um hádegi daginn eftir. Tekin hafa verið frá herbergi á hótelinu fyrir ráðstefnugesti.
Ítarlegri drög að dagskrá ráðstefnunnar verða kynnt síðar í þessum mánuði.
Starfsfólk UMÍS ehf. Environice í Borgarnesi hefur veg og vanda að undirbúningi ráðstefnunnar, enda sér fyrirtækið um rekstur Landsskrifstofu Staðardagskrár 21 á Íslandi. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna eru gefnar í síma 437 2311 og í tölvupósti stefan[hjá]umis.is og ragnhildur[hja]umis.is. |