Fjallvegahlaup

 

Þessi vefsíða og aðrar henni tengdar hafa að geyma upplýsingar um fjallvegahlaupaverkefni Stefáns Gíslasonar. Verkefnið og vefsíðan eru einkaframtak, sem stofnað var til í tilefni af fimmtugsafmæli höfundar 18. mars 2007 í þríþættum tilgangi:


     1. Að halda sér í formi á sextugsaldrinum
     2. Að kynnast landinu sínu
     3. Að vekja áhuga annarra á útivist og hreyfingu

 

Verkefnið felst í því að hlaupa yfir 50 fjallvegi á næstu 5-10 árum, einn eða enn frekar í góðra vina hópi. Fjallvegur í þessu sambandi


     + er 10-55 km að lengd
     + tengir saman tvö byggðarlög eða áhugaverða staði
     + er gjarnan forn göngu- eða reiðleið
     + má vera fáfarinn bílvegur t.d F-vegur

 

Eins og sjá má er þessi vefsíða hluti af vef umhverfisráðgjafarfyrirtækisins UMÍS ehf. Environice. Þessi tilhögun er til bráðabirgða. Í fyllingu tímans verður opnuð sjálfstæð vefsíða um verkefnið á léninu www.fjallvegahlaup.is. Innihald þessarar síðu verður þá flutt þangað.

 

Dagskrá fjallvegahlaupa 2010 (og fyrr)
Fjallvegaskráin, leiðarlýsingar, ferðasögur og myndir

 

Bloggsíða Stefáns Gíslasonar

Heimasíða UMÍS ehf. Environice

 

Síðast uppfært:  27. febrúar 2010


 
  Forsíða
  Fréttir
  Um Environice
  Verkefni
  Fróðleikur
  Alþjóðasamstarf
  Mat á umhverfisáhrifum
  Útgáfa
  Hafðu samband
  Leit