 |
UMÍS ehf. Environice er fyrirtæki sem veitir ráðgjöf um umhverfismál og sjálfbæra þróun. Það var stofnað árið 2000 af Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi. Fyrirtækið er staðsett í Borgarnesi og þar starfa þrír sérfræðingar. Fyrirtækið veitir ráðgjöf um hvaðeina sem snýr að umhverfismálum, jafnt til einstaklinga, fyrirtækja og stjórnvalda. Lögð er áhersla á persónulega og faglega þjónustu, enda er ekki til nein ein aðferð eða ein lausn sem hentar öllum. Hlutverk starfsmannanna er að finna bestu lausnina á hverjum tíma í samvinnu við viðskiptavininn. Sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi í allri vinnu UMÍS ehf. Environice. Málin eru jafnan skoðuð í víðu samhengi og mikil áhersla lögð á heildarsýn og þverfaglega hugsun, enda ekki hægt að leysa vandamál með sama hugarfari og þau voru búin til með, svo vitnað sé í Albert Einstein.
Umhverfismál snúast ekki bara um tæknilegar lausnir. Þau snúast ekki síður um stjórnun, hugarfar og aðra mannlega þætti. Starfsfólk UMÍS ehf. Environice hefur sérhæft sig í að sjá samhengið þarna á milli.
(Síðast uppfært 8. maí 2013)
|
 |
|
 |