Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar óskaði eftir því haustið 2014 að Environice legði óháð mat á fyrirliggjandi gögn um áform Silicor Materials um rekstur sólarkísilverksmiðju á Grundartanga, einkum með það í huga hvort starfseminni fylgi umhverfisleg áhætta umfram það sem fram kom í fyrirspurn Silicor Materials til Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdarinnar og í ákvörðun Skipulagsstofnunar dags. 25. apríl 2014. Í ákvörðun Skipulagsstofnunnar kom fram að umrædd hreinsun kísilmálms til framleiðslu á sólarkísil sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Viðskiptavinur: Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar

Áætlaður tímarammi: Verkefninu lauk með skilum minnisblaðs til sveitarstjórnar í desember 2014

Tengd útgáfa: Framleiðsla sólarkísils í fyrirhugaðri verksmiðju Silicor Materials á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit