Ljósm: Ragnar Th. Sigurðsson, Arctic Images

Ljósm: Ragnar Th. Sigurðsson, Arctic Images

Eins og flestir vita tekur karlalandslið Íslands þessa dagana þátt í Heimsmeistaramótinu í Rússlandi. Hitt vita e.t.v. færri að áður en lagt var af stað var gengið frá samningum um kolefnisjöfnun á ferð landsliðsins og aðstoðarmanna þess. Birna Sigrún Hallsdóttir, umhverfisverkfræðingur hjá Environice átti hugmyndina að þessu og kolefnisjöfnunin var formlega staðfest á Bessastöðum 6. júní sl., þar sem Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Guðni Bergsson formaður KSÍ og Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði hófust handa við að moka ofan í fyrsta skurðinn, með dyggri aðstoð annarra forsvarsmanna verkefnisins.

Sem fyrr segir átti Birna Hallsdóttir hugmyndina að kolefnisjöfnun HM-ferðarinnar, en hún hefur reiknað út þá losun gróðurhúsalofttegunda sem fyrirsjáanlega mun eiga sér stað vegna flugs og akstur knattspyrnulandsliðsins í Rússlandsferðinni. Samkvæmt þessum útreikningum mun heildarlosunin samsvara 50-60 tonnum af koldíoxíði, en inni í þeirri tölu eru flugferðir um 50 liðsmanna og aðstoðarmanna frá Keflavík til Gelandzhik í Rússlandi, þar sem bækistöðvar liðsins verða, svo og flugferðir þaðan og akstur í tengslum við leiki liðsins til Moskvu, Volgograd og Rostov. Þessi losun samsvarar árlegri losun frá u.þ.b. 3 hekturum af framræstu votlendi og því hefur KSÍ samið við nýstofnaðan Votlendissjóð um að endurheimta samsvarandi flatarmál. Embætti forseta Íslands hefur stutt myndarlega við þessa viðleitni með því að leggja til votlendi í landi Bessastaða, sem framræst var með skurðgreftri um miðja síðustu öld. Framlag KSÍ nægir til að breyta 3 ha af þessu landi í votlendi á nýjan leik. Þar með mun heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá íslensku landi minnka um u.þ.b. 60 tonn á ári mörg næstu ár.

Samkvæmt samkomulagi KSÍ við Votlendissjóð nýtist framlag sambandsins ekki aðeins til að kolefnisjafna Rússlandsferðina, heldur einnig til að kolefnisjafna sambærilegar ferðir knattspyrnumanna af báðum kynjum tvö næstu ár. Loftslagslegur ávinningur af endurheimtinni sem hófst formlega á Bessastöðum í dag mun þó nýtast þjóðinni og komandi kynslóðum til mun lengri tíma, enda er um varanlega endurheimt að ræða.

Endurheimtarverkefnið á Bessastöðum hófst sem fyrr segir 6. júní sl., en þá tóku aðstandendur verkefnisins sér skóflur í hönd og mokuðu drjúgum moldarhaug ofan í fyrsta skurðinn. Forseti Íslands var þar fremstur í flokki ásamt sonum sínum, en aðrir helstu samstarfsaðilar KSÍ í þessu verkefni eru Environice og Votlendissjóður. Fulltrúar þessarar aðila tóku þátt í mokstrinum í dag, auk Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfisráðherra og Gunnars Einarssonar bæjarstjóra í Garðabæ. Auk Guðna Bergssonar tók Guðrún Inga Sívertsen varaformaður KSÍ þátt í mokstrinum f.h. kvennalandsliðsins og Ásbjörn Björgvinsson framkvæmdastjóri Votlendissjóðs var fulltrúi sjóðsins við athöfnina. Bryndís Valsdóttir, framhaldsskólakennari og fyrrverandi landsliðskona í fótbolta, var einnig viðstödd moksturinn en hún átti stóran þátt í að gera þetta metnaðarfulla verkefni að veruleika.

Frétt KSÍ um kolefnisjöfnun HM

Frétt Votlendissjóðs um kolefnisjöfnun HM

 

Birna Sigrún útskýrir kolefnisvandann og útreikninga v/HM fyrir forseta Íslands og fyrirliða karlalandsliðsins. Ljósm: Bryndís Valsdóttir.

Allt tilbúið til að moka ofaní fyrsta skurðinn. F.v.: Birna Sigrún Hallsdóttir, Aron Einar Gunnarsson, Ásbjörn Björgvinsson, Guðrún Inga Sívertsen, Guðni Th. Jóhannesson og sonur hans, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Guðni Bergsson og Gunnar Einarsson. Ljósm: Ragnar Th. Sigurðsson, Arctic Images.

Stutt hlé fyrir lokatörnina í mokstrinum. Ljósm: Ragnar Th. Sigurðsson, Arctic Images.

Hér stendur kolefnisjöfnun Rússlandsferðarinnar sem hæst. Ljósm: Ragnar Th. Sigurðsson, Arctic Images.

Rafbíll Environice á hlaðinu á Bessastöðum 6. júní. Ljósm: Stefán Gíslason.