Í árslok 2023 samdi Environice við Austurbrú um útreikning á kolefnisspori Austurlands, en verkefninu var ætlað að nýtast sem grunnur fyrir stefnumótun Austurlands í loftslagsmálum. Hlutverk Environice samkvæmt samningnum var m.a. að ráðleggja um aðferðafræði við útreikning á kolefnissporinu, afla tölulegra upplýsinga og leggja fyrstu drög að aðgerðaáætlun sem miðar að því að minnka kolefnissporið, auk aðstoðar við framsetningu og túlkun niðurstaðna.
Verkefnið var í aðalatriðum sambærilegt fyrri verkefnum Environice á þessu sviði, en á árunum 2019-2022 vann Environice sambærilega útreikninga á kolefnisspori Norðurlands vestra, Suðurlands, Vesturlands og höfuðborgarsvæðisins, í öllum tilvikum í samstarfi við landshlutasamtök sveitarfélaga á viðkomandi svæðum. Samhliða verkefninu fyrir Austurbrú var einnig unnið að útreikningum á kolefnisspori Norðurlands eystra fyrir samtök sveitarfélaga á því svæði (SSNE).
Meginniðurstaða skýrslunnar um kolefnisspor Austurlands var að samanlagt kolefnisspor svæðisins árið 2022 hafi numið 1.229.386 tonnum koldíoxíðsígilda (um 113 tonn á íbúa) og að þar af hafi 532.472 tonn (rúm 43%) verið losun frá stóriðju, 410.659 tonn (rúm 33%) verið losun vegna landnotkunar og 286.255 tonn (rúm 23%) verið samfélagslosun. Losun gróðurhúsalofttegunda frá hverjum íbúa á Austurlandi er samkvæmt þessu talsvert meiri en í flestum öðrum landshlutum. Þar munar mest um stóriðjuna, en álverið á Reyðarfirði vegur eðlilega mjög þungt í losun landshlutans. Þar að auki á Austurland mjög stóran hlut í fiskveiðum landsins og losun vegna fiskaskipaflota landshlutans því meiri á hvern íbúa en í öðrum landshlutum. Auk þess eru flestar fiskimjölsverksmiðjur landsins staðsettar á Austurlandi, og þar sem þær hafa keypt skerðanlega raforku hefur olía komið inn í vaxandi mæli sem orkugjafi síðustu ár. Munurinn á losun hvers íbúa á Austurlandi og losun „meðal-Íslendingsins“ liggur því fyrst og fremst í eðli umsvifanna á svæðinu og verður ekki skýrður með því að einn landshluti standi sig betur en annar við að lágmarka losunina.
Verkkaupi: Austurbrú
Tímarammi: Samningur undirritaður 14. desember 2023. Verklok í júní 2024.
Tengd útgáfa: Kolefnisspor Austurlands