Í júní 2025 samdi Environice við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) um útreikning á kolefnisspori landshlutans. Verkefnið fól í sér endurmat og uppfærslu á fyrri útreikningum af sama tagi sem Environice vann fyrir SSV á árunum 2020-2021 og var unnið á sambærilegan hátt hvað aðferðir og efnistök varðar. Megintilgangur verkefnisins var að skapa nýjan grunn fyrir ákvarðanatöku um loftslagsmál í landshlutanum, svo og að draga upp mynd af umgjörð loftslagsmála og þeim tækifærum og ógnum sem sveitarfélög standa frammi fyrir á því sviði. Verkefnið var í aðalatriðum sambærilegt fyrri verkefnum Environice á þessu sviði, en á síðustu árum hefur Environice m.a. reiknað kolefnisspor höfuðborgarsvæðisins, Vestfjarða, Norðurlands vestra, Norðurlands eystra, Austurlands og Suðurlands, auk Vesturlands.
Verkefnið skiptist í þrjá meginþætti:
- Útreikningur á kolefnisspori Vesturlands.
- Drög að aðgerðaáætlun, þ.e.a.s. áætlun sem miðar að því að minnka kolefnisspor landshlutans í samræmi við tilgreind markmið.
- Almenn og leiðbeinandi umfjöllun um kolefniseiningar og um notkun slíkra eininga til kolefnisjöfnunar.
Upphaflega var gert var ráð fyrir að verkinu yrði lokið 31. október 2025, en verklok frestuðust vegna erfiðleika við að afla upplýsinga um landnotkun á svæðinu. Lokaskýrslu var skilað til SSV 12. janúar 2026.
Verkkaupi: Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
Tímarammi: Júní – október 2025.
Tengd útgáfa: Kolefnisspor Vesturlands 2024
Umfjöllun fjölmiðla:
https://skessuhorn.is/2026/01/20/landbunadur-og-storidja-skilja-eftir-sig-staerstu-kolefnissporin
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-01-21-losun-vegna-landnotkunar-og-storidju-dypkar-kolefnisspor-vesturlands-mest-464400


