Í dag undirrituðu Stefán Gíslason framkvæmdastjóri Environice og Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra samning um gerð tillagna að aðgerðaáætlun fyrir eflingu lífrænnar framleiðslu.

Áætlunin er unnin í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem áhersla er lögð á öfluga íslenska matvælaframleiðslu. Meðal verkefna sem þar eru tilgreind er tímasett áætlun til eflingar lífrænnar framleiðslu sem er lykilþáttur í að auka sjálfbærni íslensks landbúnaðar. Lífræn framleiðsla getur varðveitt líffræðilegan fjölbreytileika, auk þess sem eftirspurn eftir vottaðri lífrænni framleiðslu fer vaxandi.

Í aðgerðaáætluninni verða skilgreindir hvatar til aukinnar lífrænnar framleiðslu. Áhersla verður lögð á fræðslu til framleiðenda og neytenda og eflingu rannsókna á áhrifum lífrænnar framleiðslu á umhverfi og heilsu. Aðgerðaáætlunin verður unnin í samráði við helstu haghafa og jafnframt verður leitað hentugra fyrirmynda í nágrannalöndum. Meðal markmiða er að í áætluninni komi fram tillögur sem geti aukið lífræna framleiðslu með hliðsjón af þeim áskorunum sem framleiðslan glímir við í dag.

Tillögum að aðgerðaáætlun verður skilað til matvælaráðherra í ársbyrjun 2023.