Þann 14. september 2022 undirrituðu Stefán Gíslason framkvæmdastjóri Environice og Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra samning um gerð tillagna að aðgerðaáætlun fyrir eflingu lífrænnar framleiðslu.
Áætlunin er unnin í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem áhersla er lögð á öfluga íslenska matvælaframleiðslu. Meðal verkefna sem þar eru tilgreind er tímasett áætlun til eflingar lífrænnar framleiðslu sem er lykilþáttur í að auka sjálfbærni íslensks landbúnaðar. Lífræn framleiðsla getur varðveitt líffræðilegan fjölbreytileika, auk þess sem eftirspurn eftir vottaðri lífrænni framleiðslu fer vaxandi.
Í aðgerðaáætluninni eru skilgreindir hvatar til aukinnar lífrænnar framleiðslu. Áhersla er lögð á fræðslu til framleiðenda og neytenda og eflingu rannsókna á áhrifum lífrænnar framleiðslu á umhverfi og heilsu. Aðgerðaáætlunin var unnin í samráði við helstu haghafa og jafnframt var leitað hentugra fyrirmynda í nágrannalöndum. Meðal markmiða verksins var að í áætluninni kæmu fram tillögur sem gætu aukið lífræna framleiðslu með hliðsjón af þeim áskorunum sem framleiðslan glímir við í dag.
Viðskiptavinur: Matvælaráðuneytið
Áætlaður tímarammi: Tillögu að aðgerðaáætlun var skilað til ráðherra 10. janúar 2023
Tengd útgáfa: