Í desember 2018 samdi Environice við náttúrverndarsamtökin ÓFEIGU um að taka sama skýrslu um áhrif hugsanlegrar friðlýsingar Drangajökulsvíðerna á umhverfi og samfélag í Árneshreppi og þar í kring. Megintilgangurinn var að styðja við vandaða ákvarðanatöku um ráðstöfun auðlinda á Ófeigsfjarðarheiði og á svæðinu þar í kring. Skýrslunni var skilað til ÓFEIGAR 18. janúar 2019.
Meginniðurstaða skýrslunnar var að friðlýsing Drangajökulsvíðerna sé líkleg til að hafa veruleg jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag í Árneshreppi. Í skýrslunni eru þessi áhrif m.a. borin saman við áhrif fyrirhugaðrar Hvalárvirkjunar, auk samanburðar við núllkost, þ.e. líklega þróun án aðgerða. Samkvæmt þessum samanburði hefur friðlýsing jákvæðari áhrif en virkjun á alla þætti sem skoðaðir voru, sérstaklega til lengri tíma litið.
Skilgreining friðlýsingar gerir það að verkum að „friðlýsing og virkjun geta ekki farið saman. Með virkjunarframkvæmdunum mætti auka tekjur sveitarfélagsins verulega til skamms tíma, en um leið væri mikilvægum hluta af aðdráttarafli svæðisins eytt til frambúðar og lokað á þá möguleika til atvinnuuppbyggingar til langs tíma sem felast í þessu aðdráttarafli“, eins og það er orðað í skýrslunni.
Viðskiptavinur:Náttúrverndarsamtökin ÓFEIG
Tímarammi: Desember 2018 – 18. janúar 2019
Tengd útgáfa: Drangajökulsvíðerni skýrsla fyrir ÓFEIGU jan 2019


