Environice vinnur að því að aðstoða Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) í verkefni Umhverfisstofnunar, Græn skref. Verkefnið er fyrir ríkisstofnanir sem vilja draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni og efla umhverfisvitund starfsmanna sinna. Stofnanir sem taka þátt í þessu verkefni þurfa að fylgja skýrum gátlistum sem skipt er upp í fimm skref. Hvert skref felur í sér 20-40 aðgerðir sem þarf að innleiða inn í rekstur stofnana. Veitt er viðurkenning fyrir hvert skref sem stofnanir ljúka við. 

Einnig mun Environice aðstoða Landbúnaðarháskólann í mótun loftslagsstefnu, en samkvæmt lögum um loftslagsmál ber Stjórnarráði Íslands, ríkisstofnunum og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkisins að setja sér slíka stefnu. Hún skal innihalda skilgreind markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisjöfnun starfseminnar ásamt aðgerðum svo að þeim markmiðum verði náð. Tilgangur hennar er að auðvelda ríkisaðilum að draga markvisst úr áhrifum vegna losunar gróðurhúsalofttegunda.

Viðskiptavinur: Landbúnaðarháskóli Íslands
Verklok: Mars 2022
Tengd útgáfa: