Í árslok 2025 var gengið frá samningi Environice við Samband íslenskra sveitarfélaga um verkefni sem fólst í greiningu á núverandi innviðum til meðhöndlunar á lífúrgangi, þ.e.a.s. lífrænum úrgangi frá heimilum og sambærilegum úrgangi frá stofnunum og fyrirtækjum. Undir þetta fellur bæði matarúrgangur og garðaúrgangur. Samkvæmt verkefnislýsingu var verkefnið þríþætt:
- Kortlagning núverandi innviða, m.t.t. staðsetningar, afkastagetu og þess hvort meðhöndlunin teljist fullnægjandi m.t.t. laga og reglugerða.
- Mat á þörf fyrir innviði til meðhöndlunar lífúrgangs á landsvísu.
- Mögulegar lausnir þar sem innviðir eru ekki fullnægjandi.
Skýrslum með niðurstöðum fyrsta verkþáttarins var skilað til Sambands íslenskra sveitarfélaga 15. janúar 2026 og endanlegri skýrslu í apríl sama ár.
Viðskiptavinur: Samband íslenskra sveitarfélaga
Áætlaður tímarammi: Verklok 7. apríl 2026
Tengd útgáfa: Skýrsla um meðhöndlun lífúrgangs á Íslandi

