Vetrarmorgunn í Fíflholtum.

Environice vinnur með Sorpurðun Vesturlands hf. að mati á umhverfisáhrifum aukinnar urðunar í á urðunarstað Vestlendinga í Fíflholtum á Mýrum. Drög að tillögu að matsáætlun liggja nú fyrir og gefst almenningi kostur á að koma á framfæri athugasemdum við þau fram til 14. mars 2019. Eftir þann tíma verður tillaga að matsáætlun send Skipulagsstofnun til afgreiðslu, sbr. 17. gr. rgl. nr. 60/2015 um mat á umhverfisáhrifum.

Urðunarstaðurinn í Fíflholtum hefur verið í rekstri frá því í desember 1998 og samkvæmt starfsleyfi er heimilt að urða þar allt að 15.000 tonnum af úrgangi á ári. Vegna aukningar á magni úrgangs til urðunar hefur stjórn Sorpurðunar Vesturlands hf. ákveðið að sækja um nýtt starfsleyfi sem veiti heimild til urðunar á allt að 25.000 tonnum á ári í núverandi urðunarrein. Þessi aukning urðunar fellur undir tölul. 11.02 og 13.01 í 1. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum og skal því háð mati á umhverfisáhrifum, sbr. 1. mgr. 5. gr. sömu laga. Vinnan við matið hófst í janúar 2019 og er áætlað að henni verði lokið í vetrarbyrjun.

Allir geta kynnt sér tillögudrögin á vefsíðum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (www.ssv.is) og hér á þessari síðu (sjá neðar). Skriflegar ábendingar og athugasemdir skulu berast í síðasta lagi 14. mars 2019 á netfangið stefan@environice.is eða í pósti á heimilisfangið:

Umhverfisráðgjöf Íslands ehf.
v/ sorpurðunar í Fíflholtum
Bjarnarbraut 8
310 Borgarnes

Fíflholt_matsáætlun_tillaga_20. febrúar 2019 
(eindagi athugasemda er 14. mars 2019)