Environice hefur um árabil aðstoðað fyrirtæki, samtök og sveitarfélög við útreikninga á kolefnisspori og greiningu tækifæra til að draga úr losun. Stærstu verkefnin á þessu sviði hafa annars vegar falist í útreikningum fyrir heila landshluta og hins vegar fyrir einstakar búgreinar. Niðurstöðurnar hafa nýst við stefnumótun og gerð aðgerðaáætlana.