Kolefnisspor Vesturlands 2024

Í júní 2025 samdi Environice við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) um útreikning á kolefnisspori landshlutans. Verkefnið fól í sér endurmat og uppfærslu á fyrri útreikningum af sama tagi sem Environice vann fyrir SSV á árunum 2020-2021 og var unnið á sambærilegan hátt hvað aðferðir og efnistök varðar. Megintilgangur verkefnisins var að skapa nýjan grunn…

Svæðisáætlun fyrir Hulusvæðið kynnt

Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur vinna sameiginlega að gerð svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs í samræmi við 6. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, með síðari breytingum, en þessi sveitarfélög standa sameiginlega að byggðasamlaginu Hulu sem sér um úrgangsmálin á svæðinu. Tillaga að svæðisáætlun, ásamt umhverfismatsskýrslu í samræmi við III. kafla laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana,…

Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs í Vestmannaeyjum

Environice vann með Vestmannaeyjabæ að gerð svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs í Vestmannaeyjum fyrir árin 2025-2036. Verkið hófst af fullum krafti í desember 2024 og lauk 25. nóvember 2025 með staðfestingu Bæjarstjórnar Vestmannaeyja á endanlegri áætlun. Svæðisáætlun er lagaskylda skv. lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Sveitarstjórn, einni eða fleiri í sameiningu, ber skv. lögunum að semja…

Umhverfismatsskýrsla til kynningar

Umhverfismatsskýrsla vegna fyrirhugaðrar sorporkustöðvar með orkuvinnslu (sorporkuvers) á urðunarstaðnum á Strönd í Rangárþingi ytra var birt í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar í gær og þar gefst almenningi kostur á að kynna sér efni hennar og koma með athugasemdir innan lögbundins sex vikna frests, sem rennur út 2. janúar 2026. Environice hefur aðstoðað Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. við umhverfismatið,…

Umhverfisstarf Lögreglunnar á Vesturlandi

Fulltrúar Lögreglunnar á Vesturlandi og Environice við upphaf samstarfsins í árslok 2021. Environice hefur aðstoðað embætti Lögreglustjórans á Vesturlandi við umbætur í umhverfisstarfi embættisins. Embættið vill vera í fararbroddi í umhverfismálum og hefur sett saman öflugt umhverfisteymi starfsfólks á öllum sex starfsstöðvum embættisins. Innleiðing grænna skrefa og mótun loftslagsstefnu hafa verið meginstefin í samstarfi Environice…

Svæðisáætlun fyrir Vestmannaeyjar kynnt

Vestmannaeyjabær vinnur að gerð svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs í samræmi við 6. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, með síðari breytingum. Tillaga að svæðisáætlun, ásamt umhverfismatsskýrslu í samræmi við III. kafla laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, liggur nú fyrir og gefst almenningi sex vikna frestur til að kynna sér tillöguna og…

Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Austurlandi

Svæðisáætlun er lagaskylda skv. lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Sveitarstjórn, einni eða fleiri í sameiningu, ber skv. lögunum að semja og staðfesta svæðisáætlun sem gildir fyrir viðkomandi svæði til tólf ára í senn og skal sú áætlun fylgja stefnu um meðhöndlun úrgangs og stefnu um úrgangsforvarnir. Í svæðisáætlun eiga m.a. að koma fram upplýsingar um…

Kolefnisspor landshluta

Environice hefur um árabil aðstoðað fyrirtæki, samtök og sveitarfélög við útreikninga á kolefnisspori og greiningu tækifæra til að draga úr losun. Stærstu verkefnin á þessu sviði hafa falist í útreikningum fyrir heila landshluta, sem gjarnan hafa verið hluti af sóknaráætlunum landshlutanna. Niðurstöðurnar hafa nýst við stefnumótun og gerð aðgerðaáætlana fyrir landshlutasamtök og einstök sveitarfélög innan…

Kolefnisspor Vestfjarða

Í október 2024 samdi Environice við Fjórðungssamband Vestfirðinga um útreikning á kolefnisspori landshlutans. Verkefnið er í aðalatriðum sambærilegt fyrri verkefnum Environice á þessu sviði, en á síðustu árum hefur Environice einnig reiknað kolefnisspor höfuðborgarsvæðisins, Vesturlands, Norðurlands vestra, Austurlands og Suðurlands. Afrakstur verkefnisins er skýrsla sem nýtt verður við áframhaldandi stefnumótun sveitarfélaga á Vestfjörðum í loftslagsmálum.…